Ljósið sem hvarf eftir Rudyard Kipling

Ljósið sem hvarf eftir Rudyard Kipling

Við viljum benda hlustendum áskáldsöguna Ljósið sem hvarf (The Light That Failed) eftir Nóbelskáldið Rudyard Kipling (1865-1936) sem kom fyrst út í Mánaðarriti Lippincotts árið 1891. Sagan gerist að mestu í Lundúnum en færir sig stöku sinnum til Súdan og Port Said. Hér er sögð saga Dick Heldar, listmálara sem verður blindur. Þá spilar inn í söguna óendurgoldin ást Heldars á æskuvinkonu sinni Maisie. Er talið að sagan sé á margan hátt sjálfsævisöguleg og endurspegli ást skáldsins á Florence Garrard sem einnig var óendurgoldin. Er þetta fyrsta skáldsaga Kiplings, skrifuð þegar hann var 26 ára gamall. Sagan hefur notið töluverðra vinsælda fram á þennan dag og hefur hún verið sett á leiksvið og þá hafa tvær kvikmyndir verið gerðar eftir henni. Af öðrum verkum Kiplings á Hlusta.is mælum við sérstaklega með skáldsögunni Sjómannalíf og styttri sögunum Lilli Villi Vinki og Hjón og einn maðir til.

img

Ljósið sem hvarf

Rudyard Kipling

Forsíða

Efnisflokkar

Leit

Bókasafnið þitt