 |
Blóðhefnd
eftir Archibald Clavering Gunter
Sagan Blóðhefnd, eða Vendetta eins og hún heitir á frummálinu, er rómantísk spennusaga sem allir geta haft gaman að. Sagan var þýdd af Birni Jónssyni ritstjóra Ísafoldar, en þar birtist hún fyrst á íslensku á árunum 1899-1900. |
 |
Cymbelína hin fagra
eftir Charles Garvice
Þetta er spennandi sakamálasaga með rómantísku ívafi eftir Charles Garvice, sem var einn vinsælasti skáldsagnahöfundur síns tíma. Þýðandi er Guðmundur Guðmundsson, cand. phil. |
 |
Eftir dauðann - bréf frá Júlíu
eftir W.T. Stead, í þýðingu Einars H. Kvaran
Bréf frá Júlíu er áhugaverð bók sem sótt er nokkuð langt að, eða alla leið til andaheima. Byggir hún á ósjálfráðri skrift miðilsins Stead og er það stúlka að nafni Júlía sem skrifar í gegnum hann. |
 |
Eldraunin
eftir Charles Reade
Þetta er spennandi saga um ástir og örlög eftir Charles Reade (1814-1884). |
 |
Ferðir Münchhausens baróns
Münchhausen barón var uppi í Þýskalandi á 18. öld eftir því sem sagan segir og er löngu orðinn heimsfrægur fyrir hinar gamansömu afrekssögur sem honum eru eignaðar. |
 |
Helreiðin
eftir Selmu Lagerlöf
Í Helreiðinni fjallar höfundur um það ,,að maðurinn sé af náttúrunni og guði dásamlegt undur, sem búi yfir háleitum möguleikum, hve djúpt sem hann er sokkinn,'' skrifar Eiríkur Sigurðsson Í Heimskringlu. |
 |
Hringurinn helgi
eftir Fergus Hume
Hringurinn helgi eftir Fergus Hume er spennusaga sem gerist á bresku óðalssetri. Hér fléttast saman svik, rómantík og magnþrungin örlög; ekkert er sem sýnist. |
 |
Hrói höttur
Söguna af Hróa hetti og köppum hans þekkja flestir, enda höfðar hún til margra þátta í hugum okkar. Hugmyndin um útlagann sem rænir þá ríku til þess að gefa hinum fátæku og ræðst gegn ríkjandi óréttlæti á eigin forsendum er eitthvað sem kemur við réttlætiskennd okkar allra. |
 |
Hvítmunkurinn
eftir Fergus Hume
Hvítmunkurinn er skemmtileg og áhugaverð saga af gamla skólanum þar sem örlög og ástir tvinnast saman við glæpi og refsingar. |
 |
Ívar hlújárn
eftir Walter Scott
Ívar hlújárn er hin sígilda saga eftir skoska sagnaskáldið og frumkvöðul sögulegra skáldsagna, Walter Scott. Hreinasta skyldulesning fyrir alla sem unna góðum sígildum skáldsögum. |
 |
Keisarinn af Portúgal
eftir Selmu Lagerlöf
Í ritdómi Magnúsar Jónssonar, ritstjóra Eimreiðarinnar, um söguna segir m.a.: ,,Selma Lagerlöf er farin að verða allkunn íslenskum lesendum og, að vonum, vinsæl. Og víst er um það, að ekki glatar hún þeim vinsældum með þessari sögu.'' |
 |
Percival Keene
eftir Frederick Marryat
Percival Keene eftir kaptein Frederick Marryat er ein af öndvegissögum heimsbókmenntanna. Hér segir frá hinum uppátækjasama dreng Percival Keene sem lifir að hluta til í eigin heimi og er fátt heilagt. |
 |
Quo vadis?
eftir Henryk Sienkiewicz
Quo vadis? er söguleg skáldsaga Nóbelsverðlaunahafans Henryk Sienkiewicz. Sögusviðið er Róm í kringum árið 64 e.Kr., í valdatíð Nerós keisara. Hér segir frá ástum rómverska aðalsmannsins Markúsar Vinicíusar og Ligíu, ungrar kristinnar konungsdóttur af öðrum þjóðflokki. |
 |
Róbinson Krúsó
eftir Daniel Defoe
Þessi heimsfræga saga kom fyrst út árið 1719 og varð strax mjög vinsæl. Hér segir frá Róbinson Krúsó sem kemst lífs af eftir skipbrot og rekur á land á eyðieyju. |
 |
Sagan af vitninu þögla
eftir Edmund Yates
Þetta er spennandi sakamálasaga. |
 |
Sögur herlæknisins: Formáli og æviágrip
eftir Zacharias Topelius
Sögur herlæknisins eftir finnska skáldið Zacharias Topelius eru hér í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. Á sínum tíma voru sögurnar gríðarlega vinsælar og er það trú okkar að þær eigi jafn mikið erindi til okkar í dag og þær áttu þegar þær komu út. |
 |
Sögur herlæknisins: 1. Hringurinn konungsnautur
eftir Zacharias Topelius
Hringurinn konungnautur er fyrsta sagan af fimmtán í hinum stórkostlega sagnabálki eftir finnska skáldið Zacharias Topelius. Sögurnar eru hér í þýðingu Matthíasar Jochumssonar. |
 |
Tumi þumall
Þetta er hin sígilda saga um drenginn Tuma sem er svo agnarlítill að hann er ekki hærri en þumalfingurinn á móður hans. Tumi er ákaflega forvitinn og lendir því í ótrúlegustu ævintýrum. |
 |
Valdimar munkur
eftir Sylvanus Cobb
Sagan gerist í Moskvu á tímum Péturs mikla keisara og segir frá byssusmiðnum Rúrík Nevel.
|