Hlusta.is

Einar Benediktsson (1864–1940)

skáld mánaðarins | nóvember 2010

Eins og með mörg kunn skáld úr fortíðinni, hafa verk Einars Benediktssonar einhvern veginn dottið á milli kynslóða og fæstir þekkja nokkuð til verka hans. Þó hefur nafn hans ítrekað borið á góma, en öll umfjöllun tengd manninum hefur einkum snúist um manninn sjálfan og líf hans. Þetta dálæti okkar Íslendinga á persónunum á bak við skáldverkin, má þó ekki skyggja á sjálfan skáldskapinn. Það er fyrst og fremst hann sem gaf þessum gömlu meisturum það líf og gerði þau okkur hjartfólgna.

 

Farmaðurinn

eftir Einar Benediktsson

Farmaðurinn er um margt óvenjuleg saga eftir Einar Benediktsson, nokkurs konar ævintýrasaga. Sagan er skemmtileg og ber mörg höfundareinkenni Einars.

Gullský

eftir Einar Benediktsson

Sagan Gullský eftir Einar Benediktsson er óvenjuleg saga, sem erfitt er að henda reiður á. Mætti kannski segja að hún sé einhvers konar ljóð í söguformi eða einhvers konar ljóðræn upplifun, jafnvel súrrealísk.

Svikagreifinn

eftir Einar Benediktsson

Sagan Svikagreifinn er forvitnileg fyrir margra hluta sakir. Hún er skrifuð í raunsæisstíl, sem þó sker sig nokkuð frá öðrum íslenskum raunsæissögum þess tíma.

Valshreiðrið

eftir Einar Benediktsson

Sagan Valshreiðrið er kunnasta saga Einars Benediktssonar og ein af bestu smásögum sem ritaðar hafa verið á íslenska tungu.

 

Hlusta.is