 |
Anderson
eftir Einar Hjörleifsson Kvaran
Skemmtileg og áhugaverð noveletta þar sem höfundur teflir saman nýja tímanum og hinum gamla. |
 |
Ást og auður
eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson
Í þessari örlagasögu eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson segir frá stúlkunni Sigríði, bóndanum Gísla sem ann henni hugástum og kaupmanninum Þórarni sem giftist henni. |
 |
Brasilíufararnir
eftir Jóhann Magnús Bjarnason
Sagan Brasilíufararnir er spennu- og ástarsaga sem segir frá ævintýrum Íslendinga á framandi slóðum. |
 |
Brynjólfur biskup
eftir Torfhildi Hólm
Sagan Brynjólfur biskup Sveinsson kom fyrst út árið 1882 og vakti þá verulega athygli. Höfundur sögunnar, Torfhildur Hólm, var stórmerk kona og fyrst íslenskra kvenna til að hafa atvinnu af ritstörfum. |
 |
Gull
eftir Einar Kvaran
Gull er framhald sögunnar Ofurefli og hinn óviðjafnanlegi stílisti Einar Kvaran heldur áfram að segja frá persónunum sem hann kynnti þar til sögunnar og rekur örlög þeirra af mikilli næmni. |
 |
Halla
eftir Jón Trausta
Halla var ein fyrsta almenna metsölubókin hér á landi. |
 |
Heiðarbýlið I: Barnið
eftir Jón Trausta
Fyrsta sagan í flokknum Heiðarbýlinu, sem er framhald af sögunni Höllu. |
 |
Heiðarbýlið II: Grenjaskyttan
eftir Jón Trausta
Grenjaskyttan er hluti af ritröðinni Halla og heiðarbýlið, sem naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma. Sagan hefur að geyma allt sem prýða má góða sögu, átök, rómantík, litríkar persónur og stórkostlegar náttúrulýsingar. |
 |
Heljarslóðarorrusta
eftir Benedikt Gröndal
Heljarslóðarorrusta er óborganleg skáldsaga Benedikts Gröndal þar sem hann hæðist að stríði og samtíma sínum á leiftrandi og skemmtilegan hátt. Björn Björnsson les. |
 |
Hofstaðabræður
eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili
Sagan Hofstaðabræður er áhugaverð dramatísk saga í 10 köflum sem gerist á þeim tímum þegar kaþólskan er að víkja fyrir Lútherstrú. Segja má að umgjörð sögunnar séu átökin milli þeirra Jóns Arasonar biskups og sona hans og Daða Guðmundssonar í Snóksdal. |
 |
Hækkandi stjarna
eftir Jón Trausta |
 |
Jón biskup Arason (1. bindi)
eftir Torfhildi Hólm
Jón Arason hefur mörgum verið hugleikinn sem einn stórbrotnasti leiðtogi þjóðarinnar en það var hans ógæfa að vera uppi á þeim tímum þegar samfélagið kallaði eftir nýjum sið. |
 |
Júdas
eftir Sigurð Róbertsson
Hér segir frá hinum eina sanna Júdasi Ískaríot, en sjónarhornið er ólíkt því sem við erum vön að fylgja og er óhætt að segja að sagan veiti okkur nýja sýn inn í þessa þekktu sögu úr Biblíunni. |
 |
Kálfagerðisbræður
eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili
Hægt er að halda því fram að Jónas frá Hrafnagili hafi verið fyrsti sakamálasagnahöfundur okkar Íslendinga, en hann skrifaði nokkrar slíkar og byggði þær á sönnum atburðum. Ein af þesum sögum er Kálfagerðisbræður. |
 |
Kærleiksheimilið
eftir Gest Pálsson
Gestur Pálsson var einn af Verðandi-mönnum en þeir boðuðu raunsæið með tímariti sínu fyrstir allra á Íslandi. Sögur Gests hafa löngum þótt bera af öðrum samtímasögum og er Kærleiksheimilið af mörgum talin vera hans besta saga. |
 |
Ofurefli
eftir Einar Kvaran
Ofurefli er fyrsta Reykjavíkursagan, örlagasaga frá fyrstu árum 20. aldarinnar. |
 |
Sól á heimsenda
eftir Matthías Johannessen
Sagan er öðrum þræði ferðasaga, en þó er ferðalagið meir notað sem áhugaverð umgjörð utan um almennar hugleiðingar og minningar aðalpersónunnar. Sögusviðið er Algarve í Portúgal og höfundur notar umhverfið til að skapa stemningu sem margir ættu að geta fundið sig í. |
 |
Vatnaskil: Dagbókarsaga
eftir Matthías Johannessen
Í þessari áhugaverðu og einlægu frásögn meistara orðsins segir frá hugleiðingum rithöfundar og fyrrum blaðamanns sem sestur er í helgan stein. Efnið er í senn alvarlegt og skemmtilegt þegar rithöfundurinn hugleiðir það sem hann óttast mest, elliheimilið þar sem eiginkonan þó vinnur. |
 |
Veislan á Grund
eftir Jón Trausta
Sagan rekur þennan stórviðburð í Íslandssögunni sem hefur á margan hátt orðið útundan í sagnfræðilegri umfjöllun. Höfundur lagðist í mikla rannsóknarvinnu áður en hann hóf að skrifa söguna og fylgir staðreyndum og persónum eftir af mikilli nákvæmni, en skáldar svo í eyðurnar af listfengi. |
 |
Vistaskifti
eftir Einar Hjörleifsson Kvaran
Vistaskifti er ein af hinum sígildu íslensku sveitasögum í anda raunsæis. Hér segir frá piltinum Steina sem er á sveitinni eftir lát föður síns. |