Hlusta.is

Erlendur Jónsson (f. 1929)

Skáldsögur:  

Skugginn af svartri flugu

eftir Erlend Jónsson

Skugginn af svartri flugu eftir Erlend Jónsson kom fyrst út árið 2002. Sagan er bæði skemmtileg og spennandi, og auk þess endurspeglar hún íslenskan veruleika á áhugaverðan hátt og fellur t.a.m. vel inn í þær umræður sem efnahagshrunið kallaði fram.

   
Smásögur:  

Farseðlar til Argentínu

eftir Erlend Jónsson

Kynslóðabil, hugsjónir og gildi eru meginefni smásögunnar Farseðlar til Argentínu úr samnefndu smásagnasafni Erlendar Jónssonar. Sögusviðið er Reykjavík um miðbik tuttugustu aldarinnar.

Framavonir

eftir Erlend Jónsson

Hér segir frá Páli Pálssyni sem stefnir hátt innan Véltækni- og framfarastofnunar ríkisins, en þegar stöðuhækkunin sem hann vonast eftir er í annað sinn veitt öðrum, tekur hann til sinna ráða.

Horft til æskuslóða

eftir Erlend Jónsson

Horft til æskuslóða er smásaga eftir Erlend Jónsson, úr safninu Farseðlar til Argentínu sem kom fyrst út árið 1987.

Leyndarmál kennarans

eftir Erlend Jónsson

Hér er á ferðinni raunsönn saga úr samtímanum, saga um kennara sem ætlar að hætta kennslu, að lokinni rúmlega 40 ára langri starfsævi við sama skóla, og einbeita sér að því að skrifa ævisögu sína.

Lífið á Breiðósi

eftir Erlend Jónsson

Hér segir frá unglingspilti sem á ekki sjö dagana sæla, hvorki heima fyrir né í skólanum. Sérstaklega virðist skólastjóranum vera illa við hann. Kvöld eitt verður pilturinn vitni að atviki sem hann ætlar sér að nota sem vopn gegn skólastjóranum.

Saga úr sveitinni

eftir Erlend Jónsson

Saga úr sveitinni eftir Erlend Jónsson er brosleg sýn á lífið í sveitinni fyrir norðan, frá sjónarhorni tólf ára aðkomudrengs.

Stjórnmálanámskeið

eftir Erlend Jónsson

Piparsveinninn Aðalsteinn er farinn að örvænta yfir árangurslausri viðleitni til að leiðrétta kvenmannsleysið, þegar honum er ráðlagt að fara heldur út í pólitík. Það gerir Aðalsteinn - með óvæntum afleiðingum.

Sundnámskeið

eftir Erlend Jónsson

Hér segir frá tíu ára dreng sem hefur nýlega misst föður sinn og er sendur í héraðsskólann, þar sem hann þarf að kljást við skapstyggan skólastjóra, stríðna samnemendur og vatnshræðslu.

   
Ljóð:  

Borgarmúr

eftir Erlend Jónsson

Bókin Borgarmúr eftir Erlend Jónsson kom út árið 1989 og var fjórða ljóðabók höfundar. Ljóð Erlends eru mjög persónuleg en hafa um leið almenna skírskotun í samtímann og ættu allir að hafa gaman af að lesa þau.

Raddir dagsins

eftir Erlend Jónsson

Raddir dagsins kom fyrst út árið 2000 og er sjöunda ljóðabók höfundar. Eins og jafnan þegar Erlendur á í hlut eru ljóðin hreinskiptin og einlæg og ekki verið að fara í kringum hlutina.

   
Æviminningar:  

Að kvöldi dags

eftir Erlend Jónsson

Að kvöldi dags er safn minningarþátta Erlendar Jónssonar skálds og kennara. Erlendur kann vel þá list að segja frá og halda athygli lesandans. Hér er á ferðinni skemmtileg og einlæg frásögn sem allir ættu að hafa gaman af.

Svipmót og manngerð

eftir Erlend Jónsson

Erlendur Jónsson kennari, rithöfundur og bókmenntagagnrýnandi segir hér frá kynnum sínum af rithöfundum, útgefendum og öðrum sem létu að sér kveða í menningarlífi þjóðarinnar á seinni hluta liðinnar aldar.

 

Hlusta.is