 |
Að heiman
eftir Jóhann Jónsson
Að heiman er frásögn Jóhanns frá æskuárunum. Hann lýsir baráttu mannsins við náttúruöflin frá sjónarhóli ungs drengs. |
 |
Að kvöldi dags
eftir Erlend Jónsson
Að kvöldi dags er safn minningarþátta Erlendar Jónssonar skálds og kennara. Erlendur kann vel þá list að segja frá og halda athygli lesandans. Hér er á ferðinni skemmtileg og einlæg frásögn sem allir ættu að hafa gaman af. |
 |
Bernskuheimili mitt
eftir Ólöfu Sigurðardóttur frá Hlöðum
Ólöf frá Hlöðum var ein af fáum kvenskáldum sem gátu sér orðs á 19. öld. Þegar Bernskuheimili mitt kom fyrst út vakti frásögnin töluverða hneykslan, enda nokkuð berorðar lýsingar. |
 |
Dægradvöl
eftir Benedikt Gröndal
Dægradvöl er sjálfsævisaga Benedikts Gröndal og er af mörgum talin með betri slíkum sögum sem skrifaðar hafa verið á Íslandi. Benedikt tekst á meistaralegan hátt að flétta saman sitt eigið lífshlaup og það sem er að gerast í samfélaginu í kringum hann. |
 |
Dægradvöl
úr Sögusafni Ísafoldar
Dægradvöl er frásögn rituð eftir P. Fr. Eggerz af bónda nokkrum sem lokaðist inni veturlangt vegna hraunflóðs frá Heklu. |
 |
Ferðasaga
eftir Árna Magnússon frá Geitastekk
Árni Magnússon frá Geitastekk var einn víðförlasti Íslendingur sinnar samtíðar. Hann sigldi m.a. til Rússlands, Kína og Tyrklands og skrifaði sjálfur ferðasögu sína. Árni lenti í ýmsum ævintýrum og lét sér fátt fyrir brjósti brenna. |
 |
Frá Oddi Hjaltalín
úr Sögusafni Ísafoldar
Hér er frásögn af Oddi Hjaltalín, fyrrum landlækni, rituð eftir Pétri Friðrikssyni Eggerz kaupmanni. |
 |
Grænlandsför 1897
eftir Helga Pétursson
Helgi Pétursson segir frá för til Grænlands árið 1897 og kynnum af landi og þjóð. |
 |
Hreggviðsþula
eftir Jón Hreggviðsson
Hér er um að ræða bréf hins raunverulega Jóns Hreggviðssonar til Árna Magnússonar, dagsett 31. júlí 1708 og varðveitt á Landsbókasafninu. |
 |
Í kompaníi við allífið
eftir Matthías Johannessen
Þessi frábæra viðtalsbók Matthíasar Johannessen við Þórberg Þórðarson er engri lík og að margra sögn besta viðtalsbók sem gefin hefur verið út á Íslandi. Hér gefst mönnum tækifæri til þess að kynnast skáldinu Þórbergi eins og hann var. |
 |
Nafnarnir í Fagurey
úr Sögusafni Ísafoldar
Nafnarnir í Fagurey er frásögn frá miðbiki 19. aldar af hrakningum tveggja manna sem verða fyrir því óhappi að reka frá landi á ísjaka. |
 |
Sjálfsævisaga
eftir Hannes Þorsteinsson
Sjálfsævisaga Hannesar Þorsteinssonar er án nokkurs efa í flokki merkustu slíkra sagna sem komið hafa út á Íslandi. Hannes var þjóðkunnur maður á sínum tíma og stóð nærri flestum þeim atburðum sem vörðuðu veginn til framtíðar þjóðarinnar. |
 |
Svipmót og manngerð
eftir Erlend Jónsson
Erlendur Jónsson kennari, rithöfundur og bókmenntagagnrýnandi segir hér frá kynnum sínum af rithöfundum, útgefendum og öðrum sem létu að sér kveða í menningarlífi þjóðarinnar á seinni hluta liðinnar aldar. |
 |
Sögukaflar af sjálfum mér
eftir Matthías Jochumsson
Sögukaflar af sjálfum mér eru æviminningar prestsins, ritstjórans og stórskáldsins Matthíasar Jochumssonar. |
 |
Sölvi Helgason
- Óblíð örlög listamanns á erfiðum tímum
eftir Ingólf Kristjánsson
Listamaðurinn og lífskúnstnerinn Sölvi Helgason var haldinn óþrjótandi sköpunarþrá og „stundaði allt í senn myndlist, heimspeki, ljóðagerð og eflaust hefur hann verið talsverður sagnamaður líka,“ segir í inngangi. |
 |
Um láð og lög
eftir Bjarna Sæmundsson
Um láð og lög inniheldur ferðapistla frá ýmsum tímum eftir dr. Bjarna Sæmundsson. Í formála bókarinnar skrifar Árni Friðriksson: ,,Að öllu athuguðu er bókin einhver besta heimild á mörgum sviðum og full af hinum margvíslegasta fróðleik.'' |
 |
Úr blöðum Finns Jónssonar frá Kjörseyri
eftir Finn Jónsson frá Kjörseyri
Finnur Jónsson var fæddur 1842 og ólst upp í Laugardal í Árnessýslu. Honum var margt til lista lagt og í þessum minningum hans er að finna fjölmargar merkilegar frásagnir, byggðar á greind, óhemju minni og ritfærni höfundarins. |
 |
Ævisaga Sveinbjarnar Egilssonar
eftir Jón Árnason
Hér er um að ræða stutt æviágrip Sveinbjarnar, skrifað af vini hans og samtíðarmanni Jóni Árnasyni þjóðsagnasafnara. Er það bæði vandað og skemmtilega skrifað og lýsir Sveinbirni mjög vel. |